Söngvakeppni félagsmiðstöðvanna

Tvö atriði voru frá Dimmuborgum í söngkeppni félagsmiðstöðvanna á Akureyri sem fram fór í Naustaskóla í gær 10.des. Aldís Hulda söng lagið Unfaithful og Baldur spilaði undir á píanó. Karen Ósk Ingadóttir söng lagið Amnesia. Bæði atriðin komust áfram og taka því þátt í NorðurOrg sem er söngkeppni félagsmiðstöðvanna á Norðurlandi, sú keppni fer fram í janúar á Húsavík.

Óskum við þeim til hamingju með þennan árangur og góðs gengis í næstu keppni  :)