Stelpur A-Ö

Kristín Tómasdóttir, höfundur bókarinnar Stelpur A – Ö, heimsótti stelpur í 6. og 7. bekk. Hún las úr bókinni og svaraði spurningum stelpnanna sem voru afar spenntar yfir heimsókninni.

 Kristín afhenti skólanum áritað eintak af bók sinni. Helena Dögg nemandi í 7. RK veitti bókinni viðtöku fyrir hönd skólans.