27.04.2009
Spennandi tilboð fyrir 11-14 ára börn.
Árlegar sumarbúðir Norrænu félaganna verða í Hillerød í
Danmörku frá 28. júní til 5. júlí með þátttöku 90 barna frá öllum Norðurlöndunum. Boðið verður upp
á spennandi kanósiglingu, ýmsar íþróttir, útivist, tónlist og skapandi smiðjur.
Norræna félagið í Noregi og Norræna félagið á Akureyri greiða þátttöku tveggja barna frá Akureyri. Skilyrði er að
foreldrar séu í Norræna félaginu.
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Norrænu upplýsingaskrifstofunnar www.akmennt.is/nu
Skráning er með tölvupósti til mariajons@akureyri.is og í síma 462 7000 til og með 29. apríl.