Svalasöngur

Eins og hefðbundið er ár hvert í desember safnast allir saman fyrir framan kennslustofur og syngja jólasöngva. Hljóðfæraleikarar þetta árið eru Jón Baldvin, Ragga og Andri Þór 10.SA og fórst það þeim vel úr hendi. Þessi viðburður fer fram sex sinnum í desember upp úr klukkan átta á morgnanna og stendur í um 10 mínútur. Hér má sjá myndir af fyrstu söngstundinni 4.desember. Myndskeið