13.10.2008
Munum að barnið er bróðurpart dagsins í skólanum. Það getur oft hjálpað að tala í trúnaði við ákveðna
starfsmenn skólans. Menntamálaráðherra hefur hvatt skólastjórnendur til að skoða hvaða úrræði eru fyrir hendi innan skólanna
til að takast á við núverandi aðstæður á sem uppbyggilegastan hátt. Hikum ekki við að afla okkur upplýsinga um
úrræðin sem skólinn hefur yfir að ráða. Skólinn hefur í flestum tilvikum yfir að ráða sérfræðingum sem búa
yfir bjargráðum eða geta vísað okkur áfram á þá sérfræðiþjónustu sem stendur til boða í okkar
sveitarfélagi og/eða í nærsamfélaginu.
Gleymum ekki að einn erfiðasti þátturinn í samskiptum við barnið er að skilja tilfinningar þess en það er líka einn mikilvægasti
þátturinn. Það er ekkert að því að spyrjast fyrir um hvernig best er að útskýra fyrir börnunum ef við erum
óörugg.
Börnin þurfa oft og vilja tala við foreldra sína og kennara, einkum um viðkvæm mál og hluti sem valda þeim áhyggjum. Það skiptir miklu
máli að hlusta og reyna að skilja. Við þurfum ekki alltaf að eiga svör við vangaveltunum en við getum hugreyst, sýnt skilning og
væntumþykju.
Við leggjum áherslu á að jákvæð samvera með fjölskyldunni skapar öryggi og börnin þurfa að finna að á þau er
hlustað og spurningum þeirra svarað. Mjög mikilvægt er að hefðbundnum fjölskylduvenjum sé haldið við og matartími fjölskyldunnar er
góð tímasetning til að ræða við börnin á jákvæðum nótum.
Skólinn er vinnustaður barnanna og heimilið griðastaðurinn. Tökum saman höndum um að búa börnunum öruggt og kærleiksríkt
skjól á báðum stöðum. Veitum hverju barni og hvort öðru eftirtekt, skilning og stuðning á þessum erfiðu tímum.
Með vinsemd og virðingu,
Heimili og skóli – landssamtök foreldra