Dönskuval í skólanum

Í vetur er  boðið upp á dönskuval  í skólanum. Þetta er samstarfsverkefni fjögurra skóla, Gilja-, Glerár- og Síðuskóla á Íslandi og Børnenes Friskole í Aarhus í Danmörku. Nemendur í þessu vali eru 30 og danski bekkurinn telur 19 nemendur. Sótt var um styrk til Nordplus Junior sem mun fjármagna  þetta verkefni að mestu.

Danski bekkurinn kemur í heimsókn  til Akureyrar nú í næstu viku. Unnin verða verkefni á dönsku sem tengjast Danmörku og Íslandi og munu dönsku krakkarnir búa hluta tímans heima hjá þeim íslensku.  Að auki verður farið í ýmsar ferðir s.s. heimsókn í Mývatnssveit, útsýnisferð um Akureyri og að lokum munu dönsku nemendurnir heimsækja Skagafjörð.  Allur hópurinn mun svo gista eina nótt í Glerárskóla.

Í apríl mun íslenski hópurinn endurgjalda heimsóknina til Aarhus þar sem áfram verða unnin sameiginleg verkefni auk ýmissar afþreygingar.

Líklegt er að nemendur og starfsfólk skólans verði varir  við erlenda gesti á göngum skólans í næstu viku og vonum við að vel verði tekið á móti þeim.