Eingöngu kennt í sérdeild Giljaskóla í dag

Samkvæmt frétt mbl.is verður ekki kennt í grunnskólum landsins í dag en fundi í kjaradeilu félags grunnskóla og sveitarfélaganna lauk fyrir kl. sex í morgun. Nýr fundur hefur verið boðaður klukkan 15, að sögn ríkissáttasemjara. Flestum nemendum verður kennt í sérdeild Giljaskóla því einungis einn starfsmaður sérdeildar er í félagi grunnskólakennara.