Ferð í Fjallið

Ágætu foreldrar og foráðamenn Ef veður leyfir á að reyna að endurtaka útivistardaginn og fara uppí Hlíðarfjall á morgun 20. mars. Fylgt verður sömu dagskrá og áður hefur verið send til ykkar. Við viljum þó biðja ykkur að skoða heimasíðu skólans áður en þið sendið börnin af stað því við ætlum að vera með staðfestingu á því hvort farið verður eins fljótt og við getum. Veður eru mjög válynd þessa daga og ekkert hægt að segja með vissu hvort farið verður fyrr en í fyrramálið.