Foreldrafulltrúar 9. bekkjar efndu til ferðar með sinn hóp

Boðið var uppá sjóstöng eða dekur. Hér fara eftir frásagnir nemenda:

Andlitsdekur: Byrjað var á súkkulaðimaska svo nuddaði hver fyrir sig heitum steinum um allt andlit. Maskinn var þrifinn af og við hvíldum húðina í smá stund og fengum okkur smá gotterí að borða. Síðan var annar góður maski til að hreinsa húðina betur og nudduðuðm við húðina með ísköldum steinum til að þrengja æðarnar aftur eftir heitu steinana. Notuð var Jojoba olía til að taka maskann af og við enduðum á rakakremi. Að lokum voru hendur mýktar með salti frá Himalayafjöllunum. Allir skemmtu sér vel og ekki skemmdi fyrir að hafa strák í hópnum.

Sjóstöng: Við mættum öll í skólann og röðuðm okkur í einkabíla og keyrðum út á Hauganes. Þar beið okkar bátur sem heitir Niels Jónsson. Við sigldum út á sjó og stoppuðum rétt hjá Hrísey og leyfðum veiðistöngunum að flakka. Eftir stutta stund kom fyrsti fiskurinn sem Halldór Kristinsson veiddi. Það mokfiskaðist og sá stærsti var meira en 1 metri að lengd og landaði Björk honum. Eftir langan tíma með sjóstöngina var siglt heim á leið og boðið var uppá svala, kleinur og kringlur á leiðinni. Stefnt var að hvalaskoðun, það sást til hvals en hann var of langt í burtu og ekki tími til að elta hann. Þegar við komum í land hittum við dekurhópinn í heilsustöðinni. Þar biðu okkar pylsur, svali og kitkat.

Eftir vel heppnaða viðburði viljum við þakka fyrir okkur. Vilhjálmur, Pollý, Júlía, Hafþór, Ásta og Jóhanna, takk fyrir yndislegan dag.

Fyrir hönd níunda bekkjar, Ingunn og Björk.

Myndir hér