Foreldranámskeið fyrir foreldra barna með ofvirkni og/eða athyglibrest

PMT foreldrafærninámskeið (Parent Management Training) hefst í mars.

Meginmarkmið námskeiðsins er að kenna raunprófaðar og hagnýtar uppeldisaðferðir sem stuðla að jákvæðri hegðun barns og draga úr hegðunarvanda. Um er að ræða  átta vikna námskeið foreldrahópa, einu sinni í viku.

Námskeiðið fékk styrk frá Félagsmálaráðuneytinu til að efla stuðnings- og nærþjónustu við börn með ADHD greiningu.

Sótt er um á tilvísanaeyðublöðum skólateymis Fjölskyldudeildar.

Nánari upplýsingar gefur Þuríður á Skóladeild Akureyrarbæjar í síma 460-1417 eða í tölvupósti: thuridur@akureyri.is