Fréttastofan Giljaskóli

Vefmiðill staðarblaðsins Akureyri vikublað hefur óskað eftir því að fá að birta vel valdar greinar krakkanna okkar sem hafa verið að birtast á heimasíðu skólans síðustu misseri. Fyrsta greinin er komin inn. Fleiri munu væntanlega fylgja í kjölfarið.

http://www.akureyrivikublad.is/akvbl/umraedan/2012/11/19/helstu-kostir-og-gallar-giljaskola/

Áfram munu greinar eftir krakkana um skólann birtast á heimasíðu Giljaskóla. Krakkarnir eru einnig að vinna greinar þar sem þau fara út fyrir skólann og fjalla um heimabyggð. Þær birtast á heimasíðu Grenndargralsins www.grenndargral.is undir liðnum Héraðsfréttir. Þá eru í vinnslu greinar til birtingar í dagblaðsútgáfu Akureyri vikublað. Einhver dæmi eru um að greinar krakkanna hafi verið birtar hjá öðrum vefmiðlum auk þess sem þær hafa gengið á milli á fésbókinni og vakið athygli langt út fyrir skólalóðina.

Frekari landvinninga er að vænta…