Furðuverk - hönnunarkeppni

Fjórar stúlkur úr Giljaskóla þær Auður Lea, Embla Blöndal, Jóhanna Júlía og Líney Lilja, allar úr 9. RK gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Furðuverk 2015. Furðuverk er hönnunarkeppni félagsmiðstöðvanna á Akureyri og er haldin ár hvert og er keppt í hárgreiðslu, förðun og fatahönnun út frá ákveðnu þema. Þemað í ár var náttúra. Sem sigurvegarar þá halda stelpurnar til Reykjavíkur um næstu helgi og taka þátt í stóru hönnunarkeppninni STÍLL 2015 í Hörpunni.

Óskum við þeim innilega til hamingju.