Gjöf frá nemendum í 10. bekk!

Nemendur í 10. bekk sem tóku þátt í BEST stærðfræðikeppninni í vetur unnu til peningaverðlauna. Þau gerðu sér glaðan dag nú í vor. Afgangur varð af verðlaunaféinu og voru nemendurnir sammála um að láta afganginn renna í sjóð skólans sem styrkir tvö börn á vegum ABC hjálparstarfs. Þetta voru 7.500 krónur og munu þessir peningar nýtast vel!