Gjöf til sérdeildar


Þann 21. júlí sl. fékk sérdeildin peningagjöf að upphæð 285.000 sem var gefin til minningar um Katrínu Vilhelmsdóttur. Ragnheiður deildarstjóri og Þorgerður aðstoðarskólastjóri tóku á móti styrknum og einnig mættu nokkrir starfsmenn deildarinnar ásamt vinum og foreldrum Katrínar í Kaffi Laut og áttu góða stund saman. Fyrir söfnuninni fóru þær Hildur Ýr og Eidís Anna og var tilefnið að Katrín hefði orðið fertug þennan dag.
Færum við þeim bestu þakkir.