Göngum í skólann

Við viljum vekja athygli á alþjóðalega verkefninu Göngum í skólann (www.iwalktoschool.org).  Verkefnið hefst miðvikudaginn 9. september og lýkur formlega með alþjóðlega göngum í skólann deginum föstudaginn 9. október.  Í ár verður lögð áhersla á að börn gangi eða hjóli til og frá skóla.

Markmið verkefnisins eru meðal annars:

  • Hvatning til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfinar.
  • Að draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum.
  • Vitundarvakning um hversu ”gönguvænt” umhverfið er og hvar úrbóta er þörf.
  • Vitundarvakning um ferðamáta og umhverfismál.
  • Á síðasta ári tóku milljónir barna frá fjörutíu og tveimur löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti.

Á heimasíðu Göngum í skólann verkefnisins er meðal annars að finna nánari upplýsingar um verkefnið ásamt hagnýtu efni fyrir skóla, nemendur og foreldra.  Slóðin er:

www.gongumiskolann.is

Sjá nánari auglýsingu hér