Göngum í skólann!
Miðvikudaginn 7. september kl. 10.00 verður Göngum í skólann sett í Síðuskóla á Akureyri en þetta er í fimmta skipti sem Ísland tekur þátt í þessu alþjóðlega verkefni. Verkefnið hófst í Bretlandi árið 2000 og hefur þátttaka stöðugt farið vaxandi. Hér á landi stefnir í metþátttöku. Á alþjóðavísu er Göngum í skólann mánuðurinn í október og Alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn er 6. október. Göngum í skólann verkefnið fer fram hér á Íslandi í septembermánuði og því lýkur á Alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 5. október. Við hvetjum alla nemendur Giljaskóla til að ganga eða hjóla í skólann, það er umhverfisvænt og eflir heilsuna!
Meginmarkmið Göngum í skólann eru að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla eða fara á annan virkan hátt til og frá skóla. Um leið er ætlunin að:
- Hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar.
- Kenna reglur um öryggi á göngu og á hjóli.
- Draga úr umferð við skóla: Draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum.
- Betra og hreinna loft ásamt öruggari og friðsælli götum og hverfi.
- Stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál: Hversu ,,gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf. Samfélagsvitund eykst.
- Hvetja til heilbrigðs lífsstíls fyrir alla fjölskylduna: Hreyfing vinnur gegn hjartasjúkdómum, offitu og sykursýki II og stuðlar að streitulosun, betri sjálfsmynd, o.fl.
Þeir sem að verkefninu standa hérlendis eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneytið, Landlæknisembættið, Ríkislögreglustjóri, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Umferðastofa og Landssamtökin Heimili og skóli.
Nánari upplýsingar um verkefnið gefur Örvar Ólafsson verkefnastjóra hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands með tölvupósti orvar@isi.is eða í s. 514-4000. Heimasíða verkefnisins er www.gongumiskolann.is.