Hlaupahjólum stolið

Hlaupahjól hafa verið að hverfa frá hjólasvæðum við innganga skólans. Við viljum biðja foreldra og nemendur að athuga hvort þeir verði varir við hlaupahjól sem þeir kannast ekki við, við hús sín eða í görðum og koma þeim þá til okkar í skólann. Einnig minnum við á að það er á ábyrgð foreldra að senda börn á reiðhjólum eða hlaupahjólum í skólann.