Krógaból heimsækir sérdeild

Miðvikudaginn 19. janúar komu krakkar af leikskólanum Krógabóli í heimsókn til okkar í sérdeildina. Þau komu til að hitta vin sinn sem er með þeim á Krógabóli, en er hér í sérdeildinni  tvo daga í viku til að æfa sig að vera í Giljaskóla. Krakkarnir skoðuðu boltabaðið, rúmið, trompólínið, tölvuna og fullt af öðru dóti. Við lásum bók og notuðum bókvarpa og svo sungum við auðvitað líka. Hér koma nokkrar myndir frá heimsókninni.