Marimbasveitin með fjáröflunartónleika

Marimbasveit Giljaskóla heldur fjáröflunartónleika í Akureyrarkirkju laugardaginn 1.mars kl.17.
Verð kr.500, frítt fyrir 16 ára og yngri. (Ekki posi)
Sveitin fer fljótlega til Svíþjóðar í námsferð og eru tónleikarnir liður í þeirri fjáröflun.

Fjölmennum og styrkjum okkar flottu Marimbasveit.