Norræna skólahlaupið

Í dag (09 09 09) hlupu nemendur og starfsfólk Giljaskóla norræna skólahlaupið. Veðrið lék við okkur og fóru allir a.m.k. 2,5 km en allmargir hlupu 5, 7,5 eða 10 km. Með hlaupinu var einnig verið að safna pening til styrktar börnunum sem við styrkjum hjá ABC barnahjálp og eru söfnunarbaukarnir enn í öllum stofum. Það kemur í ljós eftir helgi hvort að okkur hafi tekist að safna nógu miklu til að styrkja bæði börnin eitt ár í viðbót!

Myndir hér