Samræmd könnunarpróf í 10. bekk

Framkvæmd samræmdra könnunarprófa í 10. bekk

Í nýjum grunnskólalögum nr. 91/2008, sem tóku gildi sl. sumar, er kveðið á um breytingar á samræmdum prófum í grunnskólum.

Í 39. gr. segir að nemendur í fyrri hluta 10. bekkjar skuli þreyta samræmd könnunarpróf í íslensku, ensku og stærðfræði.

Þessi nýju próf  teljast ekki vera lokapróf í grunnskóla líkt og þau samræmdu próf sem hingað til hafa tíðkast í 10. bekk. Megintilgangur samræmdra könnunarprófa er að veita skólum, nemendum og foreldrum upplýsingar um stöðu nemenda og skapa færi á að styðja við nám þeirra í viðkomandi greinum áður en grunnskólanámi lýkur. Samræmd könnunarpróf eiga ekki að liggja til grundvallar inntöku nemenda í framhaldsskóla eins og verið hefur undanfarin ár.

Þar sem ný lög tóku ekki gildi fyrr en í sumar reyndist ekki gerlegt að skipuleggja samræmd könnunarpróf er halda mætti nú í haust. Þess vegna mæla lögin fyrir um könnunarpróf í íslensku, ensku og stærðfræði skuli haldin að vori 2009 fyrir þá nemendur sem nú eru á síðasta ári í grunnskóla.

Prófin verða sambærileg þeim sem tíðkast hafa í 4. og 7. bekk. Hvorki verða haldin sjúkrapróf né skipaðir trúnaðarmenn eins og tíðkaðist við framkvæmd samræmdra prófa.

Samræmd könnunarpróf í 10. bekk eru einungis ætluð nemendum í viðkomandi árgangi.

Dagsetningar samræmdra prófa í 10. bekk vorið 2009:

Íslenska

fimmtudagur

7. maí

kl. 09:00 - 12:00

Enska

föstudagur

8. maí

kl. 09:00 - 12:00

Stærðfræði

mánudagur

11. maí

kl. 09:00 - 12:00