Í tilefni af 200 ára afmæli Jóns Sigurðssonar forseta efndi afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar til ritgerðasamkeppninnar "Kæri Jón..."
meðal nemenda í 8. bekk grunnskólanna í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið.
Alls bárust 170 ritgerðir frá 28 skólum. Ritgerðirnar voru í sendibréfsformi til að minna á bréfaskriftir Jóns Sigurðssonar og
Íslendinga á 19. öld.
Sólveig Pétursdóttir formaður afmælisnefndar Jóns Sigurðssonar og Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra
afhentu sigurvegurunum 12 verðlaun í Þjóðmenningarhúsinu 19. mars síðastliðinn.
Þessir nemendur í 8. bekk grunnskóla hlutu verðlaun í ritgerðarsamkeppninni:
- Helga Margrét Höskuldsdóttir úr Flóaskóla í Flóahreppi.
- Guðrún Sólveig Sigríðardóttir,
- Do Nu Phan Quynh,
- Karitas Ísberg,
- Snorri Másson og
- Unnur Birna Jónsdóttir öll úr Hagaskóla í Reykjavík,
- Arna Ýr Karelsdóttir úr Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit,
- Ari Páll Karlsson úr Lágafellsskóla í Mosfellsbæ,
- Atli Páll Pétursson og
- Magdalena Guðrún Bryndísardóttir úr Vogaskóa í Reykjavík
- Davíð Phuong Xuan Nguyen úr Foldaskóla í Reykjavík og
- Gabríel Snær Jóhannesson úr Giljaskóla á Akureyri
Tekið af síðu Menntamálaráðuneytisins.