Skólahreysti - úrslit

Skólahreystikeppnin milli grunnskóla Akureyrar var haldið í íþróttahöllinni við Skólastíg miðvikudaginn 16. mars.

Keppendur fyrir hönd Giljaskóla voru þetta árið, Stefán Vilhelmsson, Karen Ósk Ingadóttir, Rakel Sjöfn Stefánsdóttir og Ögri Harðarson. Varamenn voru Anna Þyrí Halldórsdóttir og Baldur Logi Gautason.

Krakkarnir stóðu sig með stakri prýði og enduðu í 2. sæti. Það kemur í ljós eftir nokkra daga hvort það fleytir okkur áfram í úrslitakeppnina.

Síðuskóli sigraði keppnina og er því kominn áfram í úrslit og óskum við Síðuskóla til hamingju með það.

Skólahreysti