Skólakór styrkir barnadeild SAk

Fyrrum meðlimir í skólakór Giljaskóla ákváðu að gefa sjóðinn sinn, tæpar 108 þús. krónur til barnadeildar SAk. Skólakórinn hefur ekki verið starfandi síðan 2014. Barnadeildin þakkar fyrrum kór Giljaskóla kærlega fyrir góða gjöf og ætla þau að kaupa eitthvað sem nýtist deildinni og börnunum vel :)