Skólalok 6. okt. - Skipulagsdagur 7. okt.

Starfsdagur er í Giljaskóla næstkomandi föstudag 7. október og  er Frístund einnig lokuð.  Næstum allt starfsfólk er að fara til Reykjavíkur á ráðstefnu Háskóla Íslands sem kallast  Menntakvika.  Við munum þess vegna ljúka kennslu hjá 5. – 10 bekk kl. 13.30 á fimmtudaginn 6.okt.  Allt er óbreytt hjá 1. – 4. bekk, sérdeild og Frístund á fimmtudag.  Sund og íþróttatímar eru líka óbreyttir.  Áður hefur farið bréf til foreldra í 8.AMÞ um skólalok.