Skólasetning haustið 2012

 

Skólasetning í Giljaskóla verður miðvikudaginn 22. ágúst.

Nemendur komi sem hér segir:

Kl. 9

2. - 4. Bekkur og sérdeild

Kl. 10

5. - 7. Bekkur

Kl. 11

8. – 10. bekkur

 

Nemendur í 1. bekk mæta ekki á skólasetningu en mæta í skólann ásamt foreldrum í viðtöl til umsjónarkennara dagana  22. og 23. ágúst. Bréf með nánari tímasetningu mun berast  öllum nemendum síðar. Föstudaginn 24. og mánudaginn 25. ágúst verður kennsla frá kl. 9.00 til 12.00.  Eftir það verður kennt samkvæmt stundaskrá.