Skólaslit 1. - 9. bekkjar

Skólaslit 1. - 9. bekkjar og sérdeildar verða að þessu sinni sameiginleg í íþróttamiðstöð Giljaskóla fimmtudaginn 5.júní. Nemendur mæti í heimastofur sínar kl. 9:00 og þaðan fara kennarar með þeim í salinn. Að lokinni athöfn þar fara nemendur aftur í sínar heimastofur og eiga þar stutta stund með kennurum. Með þessu lýkur skólastarfinu í vetur. Við þökkum ykkur samstarfið og óskum öllum gleðilegs sumars.

Starfsfólk Giljaskóla.