Skólaslit 6. júní

Skólaslit hjá 1. – 9. bekk og sérdeild hefst kl. 9:00 í íþróttahúsinu og í framhaldi kveðja þeir umsjónarkennara sína í heimastofum. Foreldrar/forráðamenn eru velkomnir. Áætlað að þetta taki um klukkustund. Frístund er lokuð.

Skólaslit hjá 10. bekk hefst kl. 15:00 í íþróttahúsinu og eiga nemendur að mæta 14:40 í íþróttahúsið. Að því loknu er hið hefðbundna kaffihlaðborð fyrir 10. bekk og aðstandendur í matsal Giljaskóla.