Söfnun fyrir ABC-börn sem Giljaskóli styrkir

Í desember var söfnun fyrir börnin okkar, Venkateswaramma sem býr í Indlandi og Sunday sem býr í Uganda. Við vorum með það markmið að safna 108 þúsund krónum sem dugar til að styrkja þau í heilt ár. Í baukana, sem voru í kennslustofum og á kaffistofum starfsfólks, safnaðis 101.783 krónur. Til viðbótar gaf 10.bekkur sem útskrifaðist í vor afgang af fjáröflun sinni sem var 17.500. Þetta gera því 119.283 krónur og eru nemendur og starfsmenn afar ánægðir með það.