Stuttmyndadagar 8.-10. bekk Giljaskóla

Stuttmyndadagar unglingastigs verða þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag í næstu viku (3.-5. mars).

Valin hafa verið 7 handrit eftir nemendur í 8.-10. bekk til að kvikmynda eftir.

Nemendur mæta í skólann kl. 8:00 að morgni og gert er ráð fyrir vinnu við stuttmyndagerð til 12:30 alla dagana. Nemendur mæta í allar valgreinar þessa daga nema: náttúrufræðival, kvikmyndagerð (Brynjar) og heimanámsval. Einnig verður leiklistarvalið við æfingar eftir skólatíma í þessari viku.