Takk fyrir frábæra marimbahátíð

Marimbahátíðin í Glerárkirkju var mjög skemmtileg og flott og sýnir okkur hvað við eigum frábæra krakka. Gleðin og orkan sem þarna geislaði af öllum gaf okkur sem á horfðum mikið og fyllti okkur lífsgleði og bjartsýni.

Stjórnendur Giljaskóla vilja þakka nemendum, leiðbeinendum og gestum og alveg sérstakar þakkir færum við Ástu, tónmenntakennara Giljaskóla, sem dreif verkefnið áfram af ótrúlegum dugnaði og krafti.

Hér má sjá myndir frá sýningunni og hér eru myndir sem teknar voru á æfingu.