Miðvikudaginn 24. september var ABC skólahlaupið haldið og söfnuðust um 72.000 krónur. Allir nemendur skólans hlupu eða gengu hring í
hverfinu í góða veðrinu... og margt af starfsfólkinu líka! Með hlaupinu lukum við söfnun fyrir ABC börnin okkar sem við höfum
nú styrkt í eitt ár. Nemendur skólans hafa verið svo duglegir, selt flöskur og fleira, og fyllt baukana í stofunum sínum.
Þökk sé þeim þá getum við styrkt Vincent frá Úganda og Udaya Lakshmi frá Indlandi fram á næsta haust. Sjá
nánar um "krakkana okkar" á
http://www.giljaskoli.is/is/page/skolinn_born_i_fjarlaegum_londum