Þri. 8. mars kl. 17:00 sýning stuttmynda nemenda í 8.-10. bekk.

Stuttmyndasýning í íþróttahúsi við Giljaskóla. Aðgangseyrir er 500 krónur fyrir fullorðna og gesti. (Ekki posi) Nemendur í Giljaskóla og yngri börn borga ekki aðgangseyri. Selt er inn við innganginn.

Kaffi og meðlæti kostar 1200 krónur fyrir fullorðna og 8. bekk og eldri, 500 krónur fyrir nemendur í 1. - 7. bekk, yngri börn fá frítt.

Vinsamlegast virðið að það þarf að vera næði í salnum svo allir njóti sýningarinnar. Gætið þess að börn ykkar séu ekki hlaupandi um salinn á meðan á sýningu stendur.