Í kvöld fengum við upplýsingar um að starfsmaður í starfsmannateymi 6. bekkjar hafi greinst með covid.
Eftir skoðun og rakningu í samstarfi við smitrakningarteymi Almannavarna er niðurstaðan sú að nokkrir úr hópi starfsfólks og nemenda fara í sóttkví. Þeir einstaklingar hafa allir fengið upplýsingar um það. Aðrir nemendur og starfsfólk sem tengjast árganginum þurfa að viðhafa svokallaða smitgát og vera þar með mjög vel vakandi fyrir minnstu einkennum og fara í sýnatöku ef þeirra verður vart.
Aðrir þurfa hvorki að viðhafa smitgát eða sóttkví, en við biðjum ykkur eftir sem áður að vera mjög vel vakandi fyrir einkennum og alls ekki senda börnin í skólann ef þau hafa eftirtalin einkenni:
Hósti
Hiti
Hálssærindi
Kvefeinkenni
Andþyngsli
Bein- og vöðvaverkir
Þreyta
Kviðverkir, niðurgangur, uppköst
Skyndilegt tap á lyktar- og bragðskyni
Höfuðverkur
Eins og áður þurfum við að taka höndum saman og hjálpast að í þessu mikilvæga verkefni.
Kristín Jóhannesdóttir
skólastjóri