Útivistartími hjá börnum og unglingum

Útivistartími barna og unglinga tekur breytingum í dag 1.sept. Nú mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan átta á kvöldin en 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan tíu.

Bregða má út af reglunum með unglinga sem eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu.

Reglum um útisvistartíma er meðal annars ætlað að tryggja nægan svefn en hann er börnum og unglingum nauðsynlegur. Foreldrar eru hvattir til þess að fylgja því eftir að börn og unglingar fái nægan svefn. Í því felst meðal annars að ganga úr skugga um að þau séu ekki í tölvunni þegar þau eiga að vera komin í rúmið.