Útskrift og skólaslit 10.bekkjar

Útskriftarhátíð og skólaslit 10.bekkjar Giljaskóla verða miðvikudaginn 5.júní kl 15.00 í Glerárkirkju. Nemendur fá þar afhent prófskírteini og veittar verða viðurkenningar fyrir árangur í námi og starfi. Sú hefð hefur komist á að eftir skólaslit er sameiginlegt kaffihlaðborð í sal Giljaskóla fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk. Við þökkum ykkur samstarfið og óskum öllum gleðilegs sumars.

Starfsfólk Giljaskóla.