Giljaskóli er skráður til þátttöku í verkefnið Göngum í skólann sem hefst miðvikudaginn 4. september og lýkur formlega 9. okt. Markmið verkefnisins eru m.a. að:
- hvetja til aukinnar hreyfingar og stuðla að heilbrigðum lífsstíl.
- minnka umferð við skóla og draga úr mengun og hraðakstri nálægt skólum.
- stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál.
- auka vitund um reglur þær er lúta að öryggi á göngu og hjóli.
Í skólanum verður lögð áhersla á að, hvetja börnin til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og fræðslu um hvernig við ferðumst á öruggan hátt í umferðinni. Virkur ferðamáti telst t.d. að ganga, hjóla, fara á hjólabretti eða línuskautum og taka strætó. Í vikunni munu kennarar vinna verkefni þessu tengt og upplagt að taka umræðuna líka heima og hvetja nemendur til að velja virkan ferðamáta.