Vorverkin í Giljaskóla

• Fimmtudag og föstudag s.l. hafa nemendur í Giljaskóla tínt rusl og sópað í góða veðrinu. Yngri nemendur hafa verið í kringum skólann og stígunum fyrir ofan skólann, en eldri nemendur hafa farið lengra frá skólanum. Það er ótrúlegt hve mikið rusl leynist í runnum og víðar eftir veturinn og ruslahrúgan sem safnaðist við ruslagáminn var ansi stór. Það er miklu skemmtilegra að leika sér á snyrtilegri skólalóð heldur en sóðalegri! Margar hendur vinna létt verk...