Fullveldisdagurinn 1. desember - Sparifatadagur

Sú hefð hefur skapast að halda hátíðlegan fullveldisdaginn 1.desember í skólanum.  Nemendur og kennarar koma þá klæddir sparifötum og setur það skemmtilegan svip á skólalífið.  Við verðum með dagskrá á sal þar sem rifjaðir verða upp atburðir fullveldisdagsins  og nokkur ættjarðarlög sungin.  Ný skólakór Giljaskóla kemur fram í fyrsta sinn  undir stjórn Ástu Magnúsdóttur tónmenntakennara og ætlar m.a að syngja lag úr Galdrakarlinum í Oz.  Með kórnum spila tveir nemendur Atli Freyr úr 5. bekk og Stefán Wilhelmsson úr 6.bekk á trommur.  Brynjar Karl Óttarson kennari mun einnig afhenda viðurkenningar fyrir Grenndargralið.

Myndir hér.