Mánudaginn 16. mars var Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk haldin í MA.
Þar voru saman komnir 13 keppendur úr 7. bekkjum í grunnskólum bæjarins. Áhorfendur voru úr hópi kennara, aðstandenda og annarra
velunnara.
Keppnin gekk í alla staði vel, ýmis ávörp voru flutt, vönduð
tónlistaratriði frá Tónlistarskólanum og svo sjálfur upplesturinn, bundið mál og óbundið samkvæmt reglum. Tveir keppendur komu
úr Giljaskóla, þau Eiður Ingi Sigurgeirsson og Eva Laufey Eggertsdóttir, bæði úr 7. RK. Þau stóðu sig með mikilli prýði
og hlaut Eva Laufey fyrsta sætið í keppninni. Í öðru sæti varð Herdís Elín Þorvaldsdóttir úr Síðuskóla
og Aldís Greta Bergdal úr Hrísey varð í þriðja sæti.
Við óskum Evu Laufeyju innilega til hamingju með sigurinn og þökkum nemendum og
kennurum fyrir vel heppnað starf við undirbúning keppninnar.
Myndir sem Ólafur Thoroddsen tók.