Við viljum vekja athygli á alþjóðalega verkefninu Göngum í skólann (www.iwalktoschool.org). Verkefnið hefst miðvikudaginn 9. september og lýkur formlega með alþjóðlega göngum
í skólann deginum föstudaginn 9. október. Í ár verður lögð áhersla á að börn gangi eða hjóli til og
frá skóla.
Markmið verkefnisins eru meðal annars:
- Hvatning til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um
ávinning reglulegrar hreyfinar.
- Að draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum.
- Vitundarvakning um hversu ”gönguvænt” umhverfið er og hvar úrbóta er þörf.
- Vitundarvakning um ferðamáta og umhverfismál.
- Á síðasta ári tóku milljónir barna frá fjörutíu og tveimur löndum víðs vegar um heiminn þátt í
Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti.
Á heimasíðu Göngum í skólann verkefnisins er meðal annars að finna nánari upplýsingar um verkefnið ásamt hagnýtu efni
fyrir skóla, nemendur og foreldra. Slóðin er:
www.gongumiskolann.is
Sjá nánari auglýsingu hér