Félagarnir Óskar Jakobsson og Gísli Einar Árnason ætla hlaupa dagana 3 –11. júlí frá Reykjavík til Akureyrar yfir Sprengisand, eða um 45 – 50 kílómetra á dag í níu daga. Þetta gera þeir til að vekja athygli á stöðu langveikra barna og safna í þrjá sjóði, meðal annars í sjóð Kristjáns Loga sem er nemandi hér í Giljaskóla.
Verkefnið gengur undir nafninu Hlaupið heim. Nánari upplýsingar um þetta verkefni má finna á heimasíðu mbl.
Félagarnir skora á fyrirtæki og einstaklinga að leggja þeim og styrktarsjóðnum Hlaupið heim lið með frjálsum framlögum. Áheitin af Hlaupinu Heim munu renna í hjálpartækjasjóð Kristjáns Loga, til sérdeildar Giljaskóla og Barnadeildar Sjúkrahússins á Akureyri.
Banki: 0565-14-404427
Kt:141005-3750