PISA könnun

Það er skammt stórra högga á milli í skólastarfinu núna.  Nemendur í 10. bekk taka þátt í PISA könnun miðvikudaginn 18. mars.  Þetta er alþjóðleg menntarannsókn og er Ísland að taka þátt í þessari könnun í þriðja skipti.  Giljaskóli hefur einu sinni áður tekið þátt í PISA könnun.  Þessi könnun metur hve vel skólakerfið býr nemendur undir fullorðinsárin og einnig hve vel íslenskir nemendur eru undirbúnir fyrir nám í framhaldsskóla og háskóla. Könnunin metur  stöðu og færni nemenda í lesskilningi, stærðfræði og náttúrufræði. Könnunin er í tveimur þáttum.  Allir taka þátt í pappírskönnun um morguninn og tekur hún um það bil þrjár og hálfa klukkustund með hléum og síðan er önnur könnun eftir hádegi sem tekur eina klukkustund.  Sú könnun er tekin á tölvur og eru þátttakendur úrtak nemenda valið af handahófi.  Frá Námsmatsstofnun kemur sérstakur prófandi til að taka könnunina.

Allir  þátttakendur eiga að vera mættir í stofu 303 kl.8:30 miðvikudaginn 18. mars. 
Nemendur eiga að hafa með sér blýant, penna og strokleður.

Tölvukönnunin er áætluð kl. 13:00.