Framkvæmd samræmdra könnunarprófa í 10. bekk
Í nýjum grunnskólalögum nr. 91/2008, sem tóku gildi sl. sumar, er kveðið á um breytingar á samræmdum
prófum í grunnskólum.
Í 39. gr. segir að nemendur í fyrri hluta 10. bekkjar skuli þreyta samræmd könnunarpróf í íslensku, ensku og
stærðfræði.
Þessi nýju próf teljast ekki vera lokapróf í grunnskóla líkt og þau samræmdu próf sem
hingað til hafa tíðkast í 10. bekk. Megintilgangur samræmdra könnunarprófa er að veita skólum, nemendum og foreldrum upplýsingar um
stöðu nemenda og skapa færi á að styðja við nám þeirra í viðkomandi greinum áður en grunnskólanámi lýkur.
Samræmd könnunarpróf eiga ekki að liggja til grundvallar inntöku nemenda í framhaldsskóla eins og verið hefur undanfarin ár.
Þar sem ný lög tóku ekki gildi fyrr en í sumar reyndist ekki gerlegt að skipuleggja samræmd könnunarpróf er
halda mætti nú í haust. Þess vegna mæla lögin fyrir um könnunarpróf í íslensku, ensku og stærðfræði skuli haldin
að vori 2009 fyrir þá nemendur sem nú eru á síðasta ári í grunnskóla.
Prófin verða sambærileg þeim sem tíðkast hafa í 4. og 7. bekk. Hvorki verða haldin sjúkrapróf né
skipaðir trúnaðarmenn eins og tíðkaðist við framkvæmd samræmdra prófa.
Samræmd könnunarpróf í 10. bekk eru einungis ætluð nemendum í viðkomandi árgangi.
Dagsetningar samræmdra prófa í 10. bekk vorið 2009:
Íslenska
|
fimmtudagur
|
7. maí
|
kl. 09:00 - 12:00
|
Enska
|
föstudagur
|
8. maí
|
kl. 09:00 - 12:00
|
Stærðfræði
|
mánudagur
|
11. maí
|
kl. 09:00 - 12:00
|