Takk, takk, takk!

Miðvikudaginn 24. september var ABC skólahlaupið haldið og söfnuðust um 72.000 krónur. Allir nemendur skólans hlupu eða gengu hring í hverfinu í góða veðrinu... og margt af starfsfólkinu líka! Með hlaupinu lukum við söfnun fyrir ABC börnin okkar sem við höfum nú styrkt í eitt ár.  Nemendur skólans hafa verið svo duglegir, selt flöskur og fleira, og fyllt baukana í stofunum sínum. Þökk sé þeim þá getum við styrkt Vincent frá Úganda og Udaya Lakshmi frá Indlandi fram á næsta haust. Sjá nánar um "krakkana okkar" á http://www.giljaskoli.is/is/page/skolinn_born_i_fjarlaegum_londum