Dagana 9.- 10. október verða árlegir þemadagar í Giljaskóla.
Athugið að hefðbundin stundaskrá gildir ekki þessa daga, en vinnulotur eru frá kl. 8.20 til 12.30 (mæting í skóla kl 8.00) Allir fara út í frímínútur frá 10.20-10.40
Þemað sem valið var að þessu sinni er Heimsálfur. Að leiðarljósi höfum við einnig þá sex grunnþætti menntunar sem kynntir eru í nýrri aðalnámskrá. Þeir eru læsi, sköpun, sjálfbærni, heilsa og hollusta, jafnrétti, lýðræði og mannréttindi. Jafnrétti gerum sérstaklega skil í vetur og 1. október var fyrsti jafnréttisdagurinn í skólanum.
Þátttakendur eru nemendur í 1.- 7. bekk ásamt sérdeildinni. Settar verða upp sjö aðalstöðvar sem hver um sig býður uppá fjölbreytt og áhugaverð viðfangsefni og vonandi finna allir eitthvað við sitt hæfi. Á hverri stöð geta verið um 40 - 60 nemendur. Hver nemandi velur sér tvær stöðvar þessa daga.
Smiðjurnar heita:
- Afríka
- N- Ameríka
- S- Ameríka
- Asía
- Evrópa
- Eyjaálfa
- Hreyfing
Í smiðjunni um Afríku munum við horfa á fræðslumyndir um álfuna, skoða m.a. kort, dýralíf og mannlíf í Afríku, búa til þorp og fígúrur, föt og skartgripi.
Í smiðjunni um N-Ameríka ætlar sérdeildin að vinna með indíána
Í S-Ameríku skoðum við lögun, lönd og einkenni álfunnar, m.a. unnið við matagerð, búin til landakort úr kaffibaunum og smíðaðar panflautur.
Í Asíu verða unnin ýmis verkefni sem minna á lönd, trúarbrögð og afurðir sem koma frá Asíu t.d. hrísgrjón.
Í Eyjaálfu verður ýmis fróðleikur á boðstólum, list frumbyggja skoðuð, dýralíf og margt fleira.
Í Evrópu ætlum við að vinna með landakort, þjóðfána, tungumál, byggingar og búa til sannkallað Evrópuspil.
Hreyfing. Þar verður boðið uppá ýmsa hreyfingu, leiki og þrautir sem tengjast heimsálfunum á einn eða annan hátt.
Þessa dagana munu nemendur þannig vinna að mjög fjölbreyttum verkefnum, eins og alltaf eigum við von á frábærri stemmmingu.
Mikilvægt er að gætt sé að klæðnaði allra nemenda því veturinn virðist ætla að gera vart við sig snemma.