Ekki viðrar vel til útvistar fyrstu þemadagana. Rok og rigning hefur einkennt veðrið og dagskráin riðlast nokkuð eftir því.
Gönguhópurinn komst ekki út fyrr en eftir nesti í gær, betur hefur gengið í dag. Nemendur voru inni í gær að gera klippimyndir en
fóru út eftir nesti að grasinu bak við Mjólkursamlagið og fóru þar í skóginn. Í dag var farið í Naustaborgir.
Hjólabrettahópurinn komst ekki á Háskólaparkið sökum rigningar. Þess í stað fékk hópurinn að vera á
hlaupahjólum, hjólabrettum og línuskautum í kringum skólann.
Innivinnan er fólgin í því að skoða myndbönd í tölvum, skoða merki sem tilheyra hjólabrettum og gera okkar eigin merki. Merkin eru
síðan sett yfir á límmiða sem nemendur fara með heim. Einnig var unnið að hugmynd að hjólabrettaparki hér við Giljaskóla.
Þá þurfti að finna út hvað væri á hjólabrettasvæðum, teikna það upp og koma því svo fyrir á kartoni
til að hengja upp. Þetta er mjög skemmtileg og áhugaverð vinna. Allir glaðir og ánægðir með sína vinnu.
Í fimleikasal eru um 45 börn í hverri lotu. Tvær lotur sem eru um níutíu mínútur í senn.
Við byrjum daginn með upphitun á löngum dýnum með ýmsum æfingum. Að henni lokinni er hópnum skipt í fernt og fá allir prófa
það sem í boði er :
1) stökkva af trampólíni ofan í gryfju
2) ganga á jafnvægisslá og gera æfingar, lágri og hárri
3) dýnuæfingar + stökkva af trampólíni
4) stórt trampólín + bogahestur + tvíslá karla
Teygjur eru gerðar í lokin.
Börnin eru frábær. Allir glaðir, áhugasamir, hjálpsamir og skemmtilegir.
Á skauta fara um sextíu nemendur. Þar er boðið uppá kynningu á hokkýskautum og listskautum og fá allir að reyna sig sem gengur
misjafnlega. Hafa nemendur fengið smáskrámur við þessa iðju enda nokkrir sem hafa aldrei fyrr stigið á skauta.
Í rjóðrinu okkar reistum við smáskýli til hlífðar fyrir rigningunni. Við kveikjum eld og grillum brauð á pinnum sem krakkarnir
tálga. Farið er í ratleik og erum við að klæða indjánatjald með trjágreinum. Allir ótúlega duglegir í
rigningunni.
Í Boganum skiptast nemendur í hópa. Einn æfir frjálsar íþróttir undir handleiðslu Unnars þjálfara frá UFA, annar er
í golfi, þriðji hópurinn er í fótbolta og sá fjórði fær júdókennslu undir handleiðslu
júdóþjálfara. Allir fá að prófa allt :)
Dagarnir ganga vel, allir virðast glaðir og una sér vel.
Við þökkum sérstaklega þeim gestum sem koma þessa daga og kynna okkur íþróttagreinar sínar.
Myndir hér