Fréttir

Skólasetning Giljaskóla 24. ágúst 2020

Nú er komið að því að hefja skólaárið 2020-2021 og hlökkum við virkilega til að fá krakkana aftur í skólann. Skólasetning Giljaskóla verður haldin mánudaginn 24. ágúst kl. 10:00. Vegna aðstæðna verður skólasetningin með öðru sniði en venja er og því miður geta foreldrar ekki tekið þátt að þessu sinni en þeir geta fylgst með skólasetningu skólastjóra á slóð sem send verður foreldrum að morgni skólasetningardags.
Lesa meira

Viðurkenning

Kolfinna Stefánsdóttir nemandi í 6. bekk var tilnefnd fyrir smásöguna "Jólasveinar í sumarfríi" á Sögum, verðalaunahátíð barnanna sem fram fór í Borgarleikhúsinu sl. laugardag 6. júní. Alls bárust um 100 sögur í keppnina og voru 20 tilnefndar af þeim. Allar sögurnar sem voru tilnefndar voru gefnar út á rafbókinni "Risastórar smásögur" á vegum Menntamálastofnunnar. Tengil á bókina má finna hér https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/risastorar_2020/ Og hér er svo ein mynd af henni með viðurkenningarskjalið sitt. Innilegar hamingjuóskir Kolfinna :)
Lesa meira

Skólaslit 1. - 9. bekkjar

Skólaslit verða með þeim hætti að 1. - 9. bekkur kemur saman í íþróttasal skólans kl. 10.00 föstudaginn 5. júní. Að því loknu fara nemendur með sínum umsjónarkennurum í stofur, fá námsmat og kveðja. Gengið er út frá því að skólaslitin taki um klukkustund. Vegna samkomutakmarkana þurfum við að hafa athöfnina að þessu sinni án foreldra.
Lesa meira

Nýtt skóladagatal komið á vefinn

Hér má sjá skóladagatal
Lesa meira

Unicef hreyfingin næstkomandi föstudag

Næstkomandi föstudag ætlum við að taka þátt í UNICEF hreyfingunni. Markmið UNICEF-hreyfingarinnar er að fræða börn um réttindin í Barnasáttmálanum og virkja þau til samstöðu með jafnöldrum sínum um allan heim. Þá munu nemendur skólans hlaupa/ganga stuttan hring í hverfinu. Hver og einn nemandi fær heimspassa og í hann safnar hann límmiðum fyrir hvern hring sem farinn er. Samhliða geta nemendur safnað áheitum frá fjölskyldu og ættingjum fyrir hvern hring sem þeir hlaupa/ganga. Nemendur fá allir upplýsingabréf um viðburðinn ásamt áheitaumslagi. Áheitin eru algjörlega valkvæð og munu allir nemendur taka þátt í að fara hringinn og fá viðurkenningu á hverjum förnum hring.
Lesa meira

Nemendaráð tekur viðtöl

Nemendaráð fór á stúfana og tók nokkur viðtöl við starfsmenn skólans. Hér má sjá þau með því að smella á nöfnin
Lesa meira

6. bekkur í kringum landið

Í apríl var hreyfiáskorun í 6. bekk. Nemendur voru hvattir til að ganga, hlaupa eða hjóla og safna kílómetrum til að komast saman í kringum Ísland. Þess má geta að hringvegurinn (þjóðvegur 1) er 1322 km en gerðu nemendur gott betur en það og fóru þeir samtals 1561 km. Hér má sjá árangur nemenda.
Lesa meira

Nemendur Giljaskóla styðja við abc hjálparstarf á erfiðum tímum

Við í Giljaskóla höfum verið að styrkja tvö börn í mörg ár. Eftir hverja söfnun hefur verið örlítill afgangur sem hefur safnast upp á reikning hjá okkur. Hugmyndir höfðu verið uppi um að styðja betur við ABC og nú kemur hann sér vel og ætlum við að nota hann til að leggja ABC lið með 50.000 króna framlagi til kaupa á matarpökkum handa fjölskyldum barna á vegum ABC sem eru verst stödd. Sá hópur sem verður hvað verst úti eru þeir sem búa við viðvarandi skort, þar á meðal eru fjölskyldur barna sem eru í skólum á vegum ABC barnahjálpar í Afríku og Asíu, en skólum hefur víðast hvar verið lokað. Hér er hægt er að lesa nánar um söfnun ABC vegna COVID 19.
Lesa meira

Tími til að lesa - tökum þátt!

Nú styttist í páskafrí hjá nemendum. Nauðsynlegt er að allir hafi nóg fyrir stafni á þessum sérkennilegu tímum og sinni fjölbreyttum og nærandi viðfangsefnum. Við í Giljaskóla höfum verið að vinna mikið með lestur og lesskilning í vetur og viljum við hvetja nemendur til að vera duglegir að lesa í páskafríinu. Einnig minnum við á mikilvægi foreldra og annarra fjölskyldumeðlima við að vera góðar fyrirmyndir í þessum efnum. Því er kjörið að fjölskyldur taki höndum saman, virki keppnisskapið og skrái sig til leiks í verkefnið Tími til að lesa. Hér má sjá myndband með Gunnari Helgasyni þar sem hann býður okkur landsmenn velkomin til þátttöku í verkefnið og hér er annað myndband þar sem Ævar vísindamaður mælir með góðri bók.
Lesa meira

Netskákmót fyrir grunnskólanemendur á Norðurlandi eystra

Skáksamband Íslands hefur ákveðið að blása til netskákmóta fyrir grunnskólanemendur á Norðurlandi eystra. Mótin verða alla fimmtudaga og hefjast klukkan 16:30 og standa í klukkustund. Samskonar mót eru þegar hafin á höfuðborgarsvæðinu og væntanlega um allt land í þessari viku. Hugmyndin er að auka jákvæða og fjölbreytta afþreyingu fyrir nemendur nú meðan svo margt liggur niðri. Öllum grunnskólanemum í bænum er heimil þátttaka í þessum mótum. Fyrsta mótið er nú á fimmtudaginn kemur 2. apríl kl. 16:30 og stendur í klukkustund. Þátttaka er einföld, en teflt er á netþjóninum chess.com.
Lesa meira