18.05.2021
Efnt var til hinnar árlegu félagsvistar unglingastigs Giljaskóla þann 17. maí sl. Þá komu saman allir nemendur í 8., 9. og 10. bekk og spiluð vist upp á gamla mátann. Venja er að spilað sé saman í aðdraganda jóla en vegna fjöldatakmarkana í desember varð að fresta spilamennskunni fram á vorið.
Lesa meira
06.05.2021
Grunnskólar á norðurlandi kepptu sín á milli í Skólahreysti á Akureyri þriðjudaginn 4. maí.
Giljaskóli sendi lið til keppni og fyrir hönd skólans kepptu þau:
Upphýfingar og dýfur: Viktor Smári
Armbeygjur og hreystigreip: María Sól
Hraðabraut: Bergur Örn og Emilía Mist
Varamenn: Freydís Jóna og Ingþór Bjarki
Þau stóðu sig frábærlega og má nefna að María Sól vann sínar greinar nokkuð örugglega.
Giljaskóli endaði í 4. sæti og erum við ákaflega stollt af okkar fólki :)
Lesa meira
04.05.2021
Bein útsending verður frá Skólahreysti í kvöld kl. 20:00 á RÚV.
Keppendur Giljaskóla eru:
Upphýfingar og dýfur: Viktor Smári Sveinsson
Armbeygjur og hreystigreip: María Sól Jónsdóttir
Hraðabraut: Bergur Örn Ægisson og Emilía Mist Gestsdóttir.
Við óskum þeim góðs gengis og hvetjum alla til að horfa á. Áfram Giljaskóli!
Lesa meira
29.04.2021
Kæru foreldrar / forráðamenn barna í Giljaskóla
Við þurfum áfram að vera á varðbergi gagnvart covid-19. Hér í skólanum reynum okkar besta til að gæta sóttvarna en við þurfum nauðsynlega ykkar samvinnu í þessum efnum áfram. Höfum þrennt alltaf í huga:
1. Ef nemandi sýnir einkenni sem gætu tengst Covid -19, vinsamlega haldið honum heima.
2. Ef einhver fjölskyldumeðlimur er á leið í sýnatöku, vinsamlega sendið börnin ekki í skólann fyrr en niðurstaða er fengin.
3. Látið ritara vita ef um er að ræða veikindi sem tengjast Covid-19.
Eins og flestir vita er nú komið eitt virkt smit á Akureyri og því þurfum við að herða okkur og vera vel vakandi. Við biðjum ykkur því að ítreka við börnin ykkar að þau verða að spritta hendur við komu í skólann og þegar þau fara í matsal.
Sjá nánar frétt RÚV: https://www.ruv.is/frett/2021/04/29/eitt-smit-stadfest-a-akureyri
Lesa meira
27.04.2021
Vinsældir rafhlaupahjóla hafa aukist að undanförnu hér á landi og höfum við hjá Samgöngustofu tekið saman upplýsingar um notkun þeirra og öryggi á www.samgongustofa.is/rafhlaupahjol. Við hvetjum kennara til að ræða við nemendur sína, sýna myndina, fara yfir fræðsluefnið og taka þetta til umræðu í skólanum. Þá óskum við eftir ykkar aðstoð við að koma þessu á framfæri á heimasíðu skólans, senda áfram til forsjáraðila, foreldrafélaga, nemendafélaga, starfsfólks skóla og frístundaheimila.
Lesa meira
24.03.2021
Í ljósi nýrra upplýsinga um hertar sóttvarnarreglur á landsvísu sem taka gildi á miðnætti er skólanum lokað. Nemendur í Giljaskóla eru því komnir í páskafrí. Frístund verður einnig lokuð þennan sama tíma. Þriðjudagurinn 6. apríl er skipulagsdagur.
Nánari upplýsingar um skólahald eftir páska verður sent út þegar þær liggja fyrir.
Gleðilega páska
Lesa meira
24.03.2021
Nú standa yfir árshátíðardagar í Giljaskóla. Þeir eru með breyttu sniði að þessu sinni vegna sóttvarnarráðstafana og því eru ekki foreldrasýninar eða kaffihlaðborð, Hátíðin var samt haldin hjá nemendum og starfsfólki og í gær voru fjölbreytt, metnaðarfull og skemmtileg atriði sýnd á nemendasýningm. Nemendur sérdeildar gerðu líflegt og skemmtilegt tónlistarmyndband, 1. - 3. bekkur sýndi Tröll í þremur hlutum, 4. bekkur kynnti okkur fyrir Bakkabræðrum, 5. bekkur sýndi Ávaxtakörfuna, 6. bekkur var með skemmtilegt taktfast dansatriði og 7. bekkur sýndi stutt skemmtileg myndbrot og sungu síðan vinalag við fallegan texta Ingunnar Sigmarsdóttur skólasafnskenara Giljaskóla.
Mikil stemning var í húsinu og gleðin við völd :)
Í dag vinna nemendur á stöðvum í blönduðum hópum og enda skóladaginn á diskói í íþróttasal skólans.
Lesa meira
23.03.2021
Í dag, þriðjudaginn 23. mars, kom Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra í heimsókn til okkar í Giljaskóla. Tilefnið var að kynnast starfinu í Giljaskóla og heyra hvaða áhrif það hefur á skólastarfið að Giljaskóli sé orðinn Réttindaskóli Unicef.
Þrír nemendur skólans, þau Brynja Dís, Ívan Elí og Kristinn Örn, fulltrúar úr réttindaráði skólans, gengu um skólann með ráðherra, sögðu frá skólastarfinu og svöruðu fyrirspurnum ásamt fulltrúum starfsfólks í réttindaráði og stjórnendum.
Við þökkum Ásmundi Einari hjartanlega fyrir komuna!
Lesa meira
19.03.2021
Nú er söfnun fyrir Ibrahim og Kevine er lokið. Við náðum markmiðinu, en það var að safna 84 þúsund krónum sem dugar til að greiða skólagjöld fyrir þau í eitt ár. Við gerðum aðeins betur en það, söfnuðum 93.542 kr. Það sem kom umfram verður geymt á reikningi og getur komið sér vel síðar. Í fyrra gátum við notað pening sem hafði safnast á reikninginn til að aðstoða fjölskyldur ABC barna í formi matarpakka, en Covid hafði haft þau áhrif að matur var dýr og erfiðara að nálgast hann.
Lesa meira
12.03.2021
Í næstu viku þriðjudaginn 16. mars - fimmtudagsins 18. mars verða stuttmyndadagar. Þá vinna nemendur unglingastigs í 6 hópum og gera jafnmargar stuttmyndir eftir handritum sem unnin voru í vetur.
Á þriðjudag og miðvikudag verður unnið í stuttmyndum frá 8:10-13:00 og á fimmtudaginn frá 8:10-11:10 en eftir hádegið fer 8. bekkur í íþróttir, 9. bekkur í list- og verkgreinar og 10. bekkur í sund.
Skyldumæting í valgreinar, stærðfræðival fellur niður.
Lesa meira