Fréttir

Vöfflukaffi

Fjölskyldum  nemenda sérdeildarinnar var boðið í morgunkaffi 24.nóvember.Allir áttu notalega stund saman bæði börn og fullorðnir.Jón Baldvin og Þorgerður mættu auðvitað og Ragga sagði smá frá starfinu í sérdeild.
Lesa meira

Jólastund í Frístund

Miðvikudaginn 8.des  kl.15 bjóða börnin í Frístund fjölskyldum sínum til jólastundar, boðið verður upp á kakó og smákökur við kertaljós og söng.
Lesa meira

3. bekkur - Slökkviliðið

23.nóvember sl.kom slökkviliðið í heimsókn í 3.bekk en það er liður að eldvarnarátaki þeirra.  Einn af þeim var klæddur í reykköfunarbúning sem nemendum fannst mjög spennandi að sjá.
Lesa meira

1. desember

Í Giljaskóla er fullveldisdagurinn alltaf haldinn hátíðlegur og mæta nemendur og starfsfólk í betri fötunum af því tilefni.Samkoma er á sal þar sem rifjaðir eru upp atburðir fullveldisdagsins 1918 og sungin nokkur ættjarðarlög.
Lesa meira

Jólin nálgast

Samkvæmt venju verður eitthvað um að hefðbundin kennsla sé brotin upp í desember í tengslum við hátíð ljóss og friðar.Reynt er að skapa notalegt andrúmsloft innan veggja skólans og búa þannig um hnútana að allir finni eitthvað við sitt hæfi.
Lesa meira

Nýtt poolborð

Í morgun var tekið í notkun nýtt poolborð í Dimmuborgum nemendum og starfsfólki til mikillar ánægju.  Skólastjórinn, Jón Baldvin tók fyrsta skotið og fyrsta leikinn tóku svo elstu nemendur skólans þau Sandra María Jessen  og Elmar Þór Aðalsteinsson.
Lesa meira

Heimsókn í sérdeild

1.GS/LS heimsótti sérdeild og fengu að kynnast nemendum og starfsfólki.  Að lokum sungu þau nokkur jólalög.Myndir af heimsókninni hér.
Lesa meira

Alþjóðlegur dagur karla.

Þeir fáu karlmenn í Giljaskóla hafa ákveðið að standa þétt saman og hafa stofnað félagið Giljafolar. Þeir héldu daginn hátíðlegan, vígðu könnur sem merktar eru félaginu og þeim sjálfum, buðu uppá bakkelsi með kaffinu í morgun sér og konum skólans til mikillar ánægju.
Lesa meira

Drykkja unglinga - hver kaupir?

Frá forvarnarfulltrúa Akueyrarbæjar.Þann 5.nóv.var haldin ráðstefnan Íslenskar æskulýðsrannsóknir.Að ráðstefnunni stóðu Æskulýðsráð, Tómstunda- og félagsmálafræðibraut MVS HÍ og Félagsvísindadeild HA í samstarfi við Félag fagfólks í frítímaþjónustu (FFF), Rannsóknarstofu í Bernsku- og æskulýðsfræðum (BÆR) og Félag æskulýðs,- íþrótta - og tómstundafulltrúa (FÍÆT).
Lesa meira